13.5.07

Snjöll aðferð til að klekkja á einhverjum

Jæja, þá er búið að kjósa á báðum vígstöðvum þ.e.a.s. til Alþingis og líka í Júróvisjón. Auðvitað kusum við eins og og fyrir okkur var lagt. Við kusum Finnland og Svíþjóð í söngvakeppninni eins og Eiríkur Hauksson lagði svekktur til. Með því klekktum við illilega á Austur-Evrópu. Við kusum líka Sjálfstæðisflokkinn eins og Jóhannes í Bónus stakk svekktur upp á til að klekkja á Birni Bjarnasyni.
Eru ekki fleiri svekktir einstaklingar í samfélaginu sem þjóðin getur gert smá greiða? Hverjum eigum við að klekkja á næst?
Kveðja
Konni

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég renndi yfir andlátsfréttir á mbl.is í dag, en ég sá ekki dánartilkynningu Konna kynlega. Hvað er að gerast? Ertu kannski farinn úr landi?

27 maí, 2007 15:16  
Blogger Konni kynlegi said...

Kæra Rannveig
Ég hef bara haft svo mikið að gera. Andleysi hefur líka komið við sögu. Held samt að ég sé að ná mér upp úr þessu. Málaði myndir í fyrsta skipti í marga mánuði með einni undantekningu þó, að beiðni Tótu.
Kannski er andinn að koma allavega ætla ég austur á land innan tíðar.
kv.
Konni

28 maí, 2007 21:42  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu hvað með okkur Tótu á ströndinni? Ertu ekki búin að mála þá mynd? Ég í bleika bikiníinu og Tóta í túrkisgræna bikiníinu með appelsínugulu blómunum. Ég var svolítið abbó út af því hvað hún fékk flott bikiní.

29 maí, 2007 11:41  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu hvað með okkur Tótu á ströndinni? Ertu ekki búin að mála þá mynd? Ég í bleika bikiníinu og Tóta í túrkisgræna bikiníinu með appelsínugulu blómunum. Ég var svolítið abbó út af því hvað hún fékk flott bikiní.

29 maí, 2007 11:41  
Blogger Konni kynlegi said...

Sæl
Ég þarf nú að hita vel upp fyrir alvöru átök í myndlistinni. Málaði myndir um helgina sem allar voru tileinkaðar konum og skógrækt.
Ætti ég ekki að halda sýningu í blómahlöðunni hjá Eymundi í sumar og bjóða á opnun????
kv
Konno
(listamannsnafnið sko)

29 maí, 2007 23:16  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu Konni, þetta er frábær hugmynd. Brilljant alveg. Fjölmiðlarnir og alles. Ég mæti, eða annars, yrði mér kannski ekki boðið. En mundu að ef þú málar strandmyndir af okkur Tótu þá máttu ekki selja þær Pétri og Páli eða Baldri og Braga fyrr en við erum búnar að skoða þær.

30 maí, 2007 11:14  

Skrifa ummæli

<< Home